Nánari upplýsingar

Námskeiðin verða haldin úti á Miklatúni og standa í 4 vikur.

Við munum æfa úti sama hvernig viðrar, þannig að það er nauðsynlegt að klæða sig eftir veðri.

Hægt er að mæta annaðhvort tvisvar í viku (þriðjudaga og fimmtudaga) eða þrisvar í viku (þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga).

Boðið er upp á eina tímasetningu, kl. 7:00 – 7:50.

Við munum leggja áherslu á skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar sem stuðla að auknu úthaldi, fitubrennslu og betri heilsu.

Það sem er innifalið í námskeiðsgjaldinu er fjögurra vikna námskeið ásamt því að þátttakendur fá ráðleggingar um mataræði, ýmsar hollar uppskriftir og hafa aðgang að þjálfara í gegnum netið ef einhverjar spurningar vakna í sambandi við mataræði eða þjálfun á meðan á námskeiði stendur.

Ef þú hefur einhverjar spurningar þá geturðu sent þær á okkur hér.